Skilmálar

Almennir skilmálar netverslunar
Compex Ísland áskilur sér þann rétt að hætta einhliða við kauppantanir sem berast, t.d. vegna þess að uppgefnar upplýsingar voru rangar.

Áskilinn er sá réttur að hætta að bjóða upp á vörur til sölu án fyrirvara.

Allar upplýsingar í netverslun Compex Ísland eru með fyrirvara um innsláttarvillur, verðbreytingar og birgðastöðu.

 

Viðskipti

Allir þeir sem eru orðnir fjárráða geta keypt vörur í netverslun Compex Ísland

Þegar pöntun er staðfest er hún orðin bindandi.

 

Verð

Öll verð, og upplýsingar, eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð geta breyst án fyrirvara.

Verð eru alltaf birt í íslenskum krónum með virðisaukaskatti (VSK).

 

Greiðslur

  • Greiðslukort á netinu og fer greiðslan í gegnum greiðslusíðu Borgunar, Compex Ísland fær aldrei kortaupplýsingar viðskiptavina einungis staðfestingu greiðslu frá Borgun. Borgun fer með upplýsingar um viðskiptavini sem trúnaðargögn.
  • Hægt er að greiða með greiðslukorti við afhendingu vöru ef vara er sótt.
  • Millifærsla á reikning Compex Ísland(Donk ehf) rkn: 0552-26-5055 6602100830

 

 

       

 

Afhending vara

Pantanir eru afgreiddar á innan við 48klst.

Ef upp kemur sú staða að vara er ekki til á lager er haft samband við viðskiptavin símleiðis eða með tölvupósti og fundin úrlausn.

Ef viðskiptavinur kýs að láta senda vöruna er hún send með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Seljandi ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá seljanda til kaupanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Sé vara sótt skal það gert eftir samkomulagi milli seljanda og kaupanda.

 

Skilafrestur

Skilafrestur á vörum er 14 dagar frá móttöku nema annað sé tekið sérstaklega fram. Hægt er að skila vörum gegn framvísun staðfestingar að viðkomandi sé kaupandi með skilríkjum, og gegn framvísun reiknings eða kvittunar. Viðskiptarvinur fær inneignarnótu fyrir skilaðar vörur sem gildir í netverslun Compex Ísland. Ef varan var send með Íslandspósti fæst sendingarkostnaður ekki endurgreiddur og endursending er á kostnað kaupanda, undantekning er ef vara reynist gölluð þá greiðir Compex Ísland sendingarkostnað.

 

Persónuupplýsingar

Farið er með allar upplýsingar sem uppgefnar eru við kaup sem trúnaðarupplýsingar.

 

Eignarhald

Compex Ísland er í eigu Donk ehf. Kt.6602100830

 

 

 

Samþykki

Viðskiptavinur sem kaupir vörur í gegnum netverslun Compex Ísland samþykkir þessa skilmála.